|
frétta og upplýsingavefir
|
01.09.2007 23:53:45 / hemmidk
ER FARINN Á MOGGABLOGGIÐ, SLÓÐIN ÞANGAÐ ER www.hemmi.blog.is SJÁUMST ÞAR
»
01.09.2007 18:31:46 / hemmidk
„Þú getur svifið upp í hæstu hæðir með hjartað fullt af lofi og þakklæti. En eins og litli lævirkinn, verður þú að lyfta þér frá jörðu; þú verður að leggja á þig það erfiði. Þetta þarf ekki að vera streð; þetta getur verið glaðlegt, áhyggjulaust erfiði. Hvers vegna vera hlekkjaður, þegar slíkt framtak gæti breytt lýfi þínu algjörlega? Horfðu hátt, því hærra því betra. Vænstu að það dásamlegasta muni gerast, ekki í framtíðinni, heldur núna. Stikaðu áfram ákveðnum, stöðugum skrefum, með djúpri, öruggri innri vissu um að þú munir ná sérhverju takmarki sem þú setur þér. Því ekki að gera eitthvað jákvætt í dag? Því ekki að beina orku þinni til jákvæðra framfara? Um leið og þú hefur gert það sem þér ber, færðu alla hjálp sem þú þarft en ekki fyrr en þá. Hafðu trú á hæfileikum þínum til að gera allt því þú færð aulegð þína frá mér. Þú getur gert allt þegar trú þín og traust eru á mér.“
»
31.08.2007 08:32:24 / hemmidk
"Undrast þú stundum hvers vegna þú ert þar sem þú ert, að gera það sem þú ert að gera? Hefur þú nokkurn tímann efasemdir í huga? Leitaðu djúpt ínnra með þér, í hjart þínu og svaraðu þessum spurningum heiðarlega. Ef þú finnur að þú ert ennþá ínn af þessum efasemdarmönnum, gefðu þér þá tíma til að ver hljóður, leita uppljóunar innan frá og átta þig á hvar þú passir inn í hina víðtæku heildarmynd. Ég get fullvissað þig um að það er engin tilviljun að þú ert þar se þú ert. Lífið hefur ef til vill verið þér mjög erfitt. Þú gætir hafa þurft að ganga í gegnum margar prófraunir og reynslu. Þér gæti jafnvel fundist eins og þér hafi verið varpað í brennandi loga. Þú getur verið viss um að ástæða er fyrir þessu öllu: það þarf að brenna burt óhreinindin svo ekkert verði eftir nema hreint gullið – ég er nærvera þín innra með þér – þá get ég unnið í og gegnum ég er nærveruna, birt dásemdir mínar og dýrð svo allir geti séð."
»
29.08.2007 10:29:21 / hemmidk
Lífið gengur allt sinn vana gang þessa dagana, Birna var sett til að fæða þann 21 ágúst en ekkert gerist, erum orðin pínu óþolinmóð að bíða, en drengurinn kemur bara þegar honum hentar og æfum við okkur bara í þolinmæði á meðan, fékk sendann þennan gamla góða fóstbræðra-skets í um daginn, læt hann fljóta með. hafið það gott!!
»
29.08.2007 10:25:47 / hemmidk
“Þú verður að vinna úr því sem þér ber að vinna í andlegur lífi. Ég er ávallt hér til að hjálpa þeim sem hjálpa sér sjálfir en þú verður að taka fyrsta skrefið. Þú lærir aldrei lexíur ef allt er gert fyrir þig. Þú getur ekki þjálfað barn með því að gera allt fyrir það. Þú verður að leyfa því að spreyta sig. Skiptir engu hve hægar og fálmandi gerðir þess eru í fyrstu, þú verður að standa á bak við og vera afar þolinmóður. Ég verð að standa á bak við þig afar þolinmóður og kærleiksríkur og sjá hvernig þú vinnur úr þínu og gerir mistök. En hafðu ávallt í huga að þú hefur hag af mistökum þínum; því ekkert er til einskis. Þú ert ávallt að læra nýjar lexíur og taka framförum á Andlegu leiðinni. Sérhvert skref, skiptir ekki máli hve lítið það er, færir þig nær takmarkinu, skilning þínum á einingu við mig; þangað til að lokum þú gerir þér grein fyrir að það er enginn aðskilnaður, allt er eitt og þú ert hluti af þessu eina dýrðlega lífi.”
»
28.08.2007 08:26:56 / hemmidk
“það er ákaflega þýðingarmikið að læra að setja það framar öllu sem skiptir mestu máli, því aðeins þá gengur allt fullkomlega upp. Leitaðu í hjarta þínu og sjáðu hvað þú hefur efst á lista. Er það þú sjálfur og þín eigin velferð? Eða er það vinnan þín og efnaleg staða? Ertu ánægður að lifa lífinu algjörlega ómeðvitaður um mig? Þú ert algjörlega frjáls að hafa hvaða viðhorf sem þú óskar þér. Enginn mun stöðva þig. En þú verður að vera fús að taka afleiðngunum þegar allt fer úrskeiðis. Þegar þú veist hvað er rétt og velur að fara þína eigin leið, berð þú jafnvel meiri ábyrgð því þú getur ekki látið sem þú vitir ekki hið rétta. Afsakaðu þig aldrei með því að það sé svo mikið að gera að ekki sé tími til að láta allt ganga upp. Ég segi þér að þegar þú setur það framar öllu sem skiptir mestu máli, þá er tími fyrir allt.”
»
27.08.2007 10:46:48 / hemmidk
“þakkaðu fyrir allt. Hafðu hjartað galopiðð og láttu þakklætistilfinningu flæða í endalausum straumi. Það er hægt að vera þakklátur fyrir svo margt. Þakklætið heldur augum þínum opnum fyrir mér og dásemdum mínum. Þá saknar þú einskis og þú sérð mig í öllu sem gerist. Þú veist að það er munstur og áætlun í lífi þínu; þess vegna eru engar tilviljanir. Sérhvert samband er rétt, sérhver framkvæmd er undir handleiðslu. Þú verður að hafa fullkomið traust til að vera fær um að lifa á þennan hátt, trú á að lífi þínu sé leiðbeint og stýrt af mér. Það þýðir að þú verður fyrst að gefa þig allan til mín, til þess að hægt sé að nota þig eins og ég vil. Þú verður að læra að eingöngu þegar þú gefur allt muntu fá allt. Þú getur aðeins gefið allt þegar þú hefur lært að elska mig af öllu hjarta, huga, sál og styrk; því án kærleika getur þú ekki tekið þessi skref, getur ekki lifað andlegu lífi. Opnaðu því hjarta þitt og elskaðu.”
»
26.08.2007 10:23:55 / hemmidk
"Þú hefur gífurlegt verk að vinna. Það er hin hljóða vinna, að skapa meiri kærleika í heiminum. Líkt og gerið í deiginu sem vinnur sitt verk hljoðlega og án fjaðrafoks. En vanti gerið, verður brauðið bara þéttur klumpur. Elskaðu þess vegna þær mannverur sem þú ert með, elskaðu það sem þú ert að gera, elskaðu umhverfi þitt og þær mannverur sem þú lítur á sem óvini þína. Það er mikið meiri dyggð að elska þá sem virðist vera ómögulegt að elska en elska aðeins þá sem elska þig. Finndu þörf sérhverrar mannveru fyrir kærleika. Leyfðu þér að vera farvegur kærleika, til að uppfylla þá þörf. Um leið og sérhver einstaklingur lærir að elska kærleikans vegna verða erfiðleikarnir í heiminum léttari því kærleikur flytur með sér léttleika þangað sem áður voru þyngsli og myrkur. Kærleikur byrjar innra með sérhverjum einstaklingi. Líttu því inn á við í þitt eigið hjarta og kallaðu hann fram. Gefðu hann fúslega og af einlægri gleði."
»
25.08.2007 14:57:44 / hemmidk
"Láttu þér aldrei finnast að þú hafir ekkert að gefa. Þú hefur gífurlega margt að gefa og þú munt gera þér grein fyrir að því minna sem þú hugsar um það, þeim mun betur gengur það. Því meira sem þú hugsar um aðra og lifir fyrir þá, gleymir sjálfum þér algjörlega í þjónustu við þá, með enga hugsun um hvað þú fáir út úr lífinu, þeim mun hamingjusamari verður þú. Gefðu aldrei með annarri hendi til að taka það aftur með hinni. Þegar þú gefur, hvað sem það er, gefðu þá án nokkurra skilyrða svo hægt sé að nota það algjörlega frjálst. Þegar þú gefur, gefðu þá ríkulega, fúslega og af öllu hjarta, og gleymdu því síðan. Þessar reglur eiga við gjarfir á öllum sviðum, hvort sem þær eru efnislegar eða andlegar, snertanlegar eða ósnertanlegar. Vertu alltaf örlátur þegar þú gefur og óttastu ekki að þjást af skorti, því á þann hátt er það ekki sönn gjöf. Gefir þú einlæglega mun þig ekkert skorta." (ÚR BÓKINNI "ÉG ER INNRA MEÐ ÞÉR".)
»
24.08.2007 08:53:21 / hemmidk
“Líttu í eiginn barm. Er þar eitthvað sem veldur óeiningu og ágreiningi? Er þar einhver misskilningur, afbrýðisemi, öfund eða eitthvað neikvætt sem gæti hamlað þér? Þú þarft að horfast í augu við sjálfan þig af sanngirni, hreinskilni og heiðarleika. Ef því er þannig varið að þú sért sandkornið sem vinnur fullkomlega samkvæmt áætlun minni, muntu vita það án nokkurs efa. Ef þér líður óþægilega, ert með afsakanir og reynir að réttlæta gerðir þínar og hugsanir, getur þú verið viss um að eitthvað djúpt innra með þér þarf að breytast. Þegar þú áttar þig á því láttu það þá ekki að draga þig niður en breyttu strax viðhorfi þínu og viðmóti. Eg er ávallt hér til að hjálpa þér. Kallaðu á mig og ég mun hjálpa þér að sigrast á öllu sem virðist vera í veginum og hindrar þig í að skynja að þú sért eitt með heildinni.” Úr bókinni ÉG ER INNRA MEÐ ÞÉR
»
23.08.2007 00:29:44 / hemmidk
Blessuð og sæl öll sömul, ég er búinn að vera að drepast úr Blogg-leti, en af mér og mínum er allt gott að frétta, Birna mín allveg að fara að fæða, var reyndar sett þann 21 ágúst svo við væntum þess að eitthvað fari að gerast á allra næstu tímum/dögum. Ég er búinn að vera að glugga í bók annað slagið sem heitir „Ég er innra með þér“ og er allveg mögnuð bók með smá hugleiðslu fyrir hvern dag, allveg magnað finnst mér, hér að neðan er hugleiðing dagsins í dag fyrir þá sem vilja vaxa andlega,.... Það vil ég..... „Leyfðu krafti andans að streyma inn í þig og gegnum þig. Opnaðu þig fyrir þessum óendanlega krafti; og gerðu þér grein fyrir að sannur leyndardómur hans er fólginn í að vera í nánu sambandi við mig og að taka á móti frá hinni óendanlegu, eilífu uppsprettu. Hún er ávallt til staðar fyrir allar mannverur sem eru tilbúnar til að nota rétt, það sem þær fá frá þessari uppsprettu, til hagsbóta fyrir heildina. Þú verður að ver tilbúinn; þú verður að biðja áður en þú getu þegið. Því verður ekki ýtt að þér fyrr en þú er tilbúinn. Trúir þú að allt sé mögulegt með mér? Skilur þú þá staðreynd eða leyfir þú enn efasemdum og ótta að eyðileggja fullkomnunina í lífi þínu? Fullkomið hljómfall er í öllu lífi. Þegar þú ert í samhljómi, fylgir þú því án nokkurrar áreynslu og finnur gleði og örvun í að gera það. Því ekki að ver í takt, komast í samhljóm og njóta lífsins til fullnustu?“ Er að spá í að deila þessum hugleiðingum með ykkur framvegis, Hafið það gott og hugsið fallega!!! Hafið Þórdísi Tinnu og Palla Flugmann ofarlega í bænum ykkar, þau þurfa virkilega á því að halda!!!
»
28.07.2007 11:22:24 / hemmidk
Þá er
maður lentur á klakanum og farinn að vinna aftur, en á rólegu
nótunum því það er ekki svo mikið að gera eins og venjulega,
það eru svo margir í sumarfríi og ekkert á þeim buxunum að
kaupa veislumat J
Ég og Emil
áttum allveg hreint frábæra ferð til kóngsins köben,
hittum marga gamla og góða vini og skemmtum okkur hið besta, fórum
í dýragarðinn, í Tívolí og svo frv....rosa gaman hjá okkur.
Ég hjálpaði
Erlu föðursystur minni í köben að gera matinn í fimmtugsafmælinu
hennar og heppnaðist það svaka vel, það komu ca 100 manns og var
veislan haldin í bakgarðinum hennar, þar var hann Jón maðurinn
hennar og fleiri menn búnir að setja upp partý-tjöld og var
stemningin hin besta, við buðum uppá 3 rétta máltíð sem byrjaði með
Parmaskinku í forrétt borin fram á ruccula með melónubitum og
ananas-mangódressingu og ferskum parmesanosti, svo
vorum við með grill-tvennu þ.e.a.s. heilgrilluð lambalæri og
bbq-spareribs og höfðum við gert helling af meðlæti s.s. venjulegt
salat, bulgursalat, hummus, heitt grænmeti, ferskt og fallegt
miðjarðarhafs-kartöflusalat úr smælki og kalda sósu úr creme
fraishe og grísku jógúrti með helling af hvítlauk og kryddjurtum,
allir voru glaðir með matinn og þá getur maður ekki annað en verið
sáttur. Í eftirrétt höfðum við Creme Brulé með
fersku ávaxtasalati og hindberjasósu og sló það allveg í gegn, svo
endaði matarveislan með næturmat að dönskum sið eftir miðnætti og
buðum við uppá rauðar pylsur að dönskum sið með öllu
tilheyrandi.
Hérna á
næstunni mun ég setja nokkrar myndir úr ferð okkar feðga inn á
síðuna og mun það byrtast undir link hér neðst á síðunni til
vinstri.
Svo er það mikilvægur leikur í dag keflavík sem
við vinnum að sjálfsögðu.
Áfram
FH!!!
»
11.07.2007 10:29:38 / hemmidk
Þá er bara kominn miðvikudagur, vá hvað
tíminn flýgur.Um síðustu helgi
héldum við Birna uppá 3 ára afmælið hanns Emils okkar og
heppnaðist það svona líka vel, það voru reyndar nokkur
forföll en það er ekki við öðru að búast á þessum árstíma,
við héldum þetta á “hefðbundin hátt” með pylsuparýi og opnu
húsi fyrir nánustu fjölskyldu frá 13-16 og svo fyrir
vinahópinn okkar eftir það, krakkarnir voru ímist inni
eða úti að leika í sandkassanum sem Emil fékk í afmælisgjöf
frá Didda afa og Ingu ömmu eða í boltaleik, Björgvin Franz
sýndi töfrabrögð fyrir börnin á heimsmælikvarða og var þetta
bara skemmtilegt í alla staði.
Á laugardaginn er svo stefnan
tekin á Kaupmannahöfn, ég og Emil förum þangað bara tveir því það
er ekki nema rétt mánuður þangað til hún Birna mín á að eiga næsta
kríli, (bara að hún geri það ekki á meðan ég er úti
:-)
það verður eflaust mikið fjör hjá
okkur feðgum og hlakkar okkur svakalega til :-)
Áfram FH
»
03.07.2007 15:22:00 / hemmidk
Jæja þá
vinir og allir hinir, þá er sumarið bara hálfnað en mér
finnst það bara nýbyrjað, svona líður tíminn þessa dagana,
það er ágætis-álag á mér þessa dagana, Rúnar búinn að vera
erlendis í eina viku og á eina eftir, en
þetta horfir allt í rétta átt, ég og Emil erum að fara til DK
þann 14 í tíu daga, það verður fjör hjá okkur feðgum, það
styttist óðum í það að hún Birna mín verði léttari, en hún er
sett til að eiga þann 21 ágúst en eins og við vitum af fyrri
reynslu gæti allt farið að gerast 3 vikum fyrr ef þetta
verður eins og síðast þannig að uppúr verslunarmannahelgi er
viðbúnaðarstigið á sínu
hæsta.
Ingó og Lóa
koma til okkar í kvöld og ætla ég að gefa þeim eitthvað gott í
gogginn, alltaf gaman þegar þau eru á
svæðinu.
Sindri vinur
minn frá danmörku og fjölskylda eru einnig væntanleg til landsins í
dag þannig að það verður mikið fjör næstu daga að öllum
líkindum.
Um síðustu helgi vorum við
litla fjölskyldan í Kjósinni í blíðskaparveðri,
ég og Emil komum uppeftir á föstudeginum, Birna var í einhverri
starfsmanna”gleði” á föstudagskvöldinu en við feðgarnir höfðum það
gott uppí sveit, fórum í heimsókn til vina í öðrum bústað og fórum
svo í síðkvöldssiglingu á vatninu áður en við fórum að sofa, sváfum
við til klukkan 10.30 á laugardeginum, fengum okkur að borða og
fórum svo út á bát að veiða og fengum 5 ágætis urriða, þegar í land
var komið voru Birna, mamma hennar og pabbi, Siggi bróðir hennar og
Glódís frænka hennar rétt ókomin, þegar þau komu varð glatt á
hjalla, allavega hjá litla manninum, hann sér nefnilega ekki sólina
fyrir ömmu Ingu og afa Didda. Seinna um daginn
komu svo amma Hjördís og afi Siggi í heimsókn (foreldrar Didda) og
áttum við mjög góðan eftirmiðdag og fórum við 2 langa veiðitúra um
vatnið og veiddum eitthvað nærri lagi 20 urriða og eina bleikju í
þeim ferðum, grilluðum svo saman um kvöldið og var þetta bara
huggulegt. Á sunnudeginum vaknaði ég til að pissa en ég varð svo
heillaður af kyrrðinni að ég fór út á bát og út á mitt vatnið og
stoppaði mótorinn og kastaði flugu og naut kyrrðarinnar, áttaði mig
svo á að klukkan var ekki nema 5 þegar ég vaknaði um nóttina, svona
getur maður verið ruglaður um íslenska sumarnótt ef maður lítur
ekki á úrið, laggði mig bara aftur um klukkan 7 og svaf þangað til
Emil vakti mig um klukkan 10-10.30 kyrrðin var ennþá svo mikil að
við fórum öll í syglingu og veiddum 2 urriða í viðbót, fórum svo í
land og grilluðum okkur pylsur, pylsuðum okkur niður í orðsins
fyllstu, fórum svo heim um eftirmiðdaginn, ánægð eftir skemmtilega
helgi, fórum svo í sund þegar í bæinn
kom.
Í gær komu
Diddi og Inga og gáfu Emil fyrirfram afmælisgjöf en sá stutti
verður 3 ára þann 19 júlí en þá verður hann staddur í Köben með
mér, þau gáfu honum Sandkassa hvorki meira né minna, og varð sá
stutti heldur glaður og upp með sér.
»
25.06.2007 12:25:38 / hemmidk
Lögðum í hann frá umferðarmiðstöðinni klukkan 19.00 á
föstudagskvöldið, stemningin í hópnum var góð og eftirvænting
mikil, ferðin gekk hægt út úr borginn enda höfðu greinilega fleiri
en við ákveðið að leggja land undir fót um helgina, en allt miðaði
þetta í rétta átt þótt hægt gengi.
Gengum upp frá skógum milli 22-22,30 og hitnuðu lappirnar
vel við það að labba þessar vel á 4 hundrað tröppur sem mér skilst
að séu upp með fram fossinum, (góð
upphitun)
Svo hélt förin áfram upp hlíðarnar og tók hver fossinn á
fætur öðrum við okkur, hver öðrum fallegri, ég er bara alltaf að
verða meira og meira undrandi á landinu okkar, hversu stórbrotið og
fallegt það er, það var gengið
rösklega.
Það er ekki hægt að segja annað en að vel sé að þessu
staðið hjá ÚTIVIST, í fyrsta allvörustoppinu uppi við vaðið
svokallaða á gönguleiðinni var tekið á móti okkur með heitu kakói
og flatkökum með hangikjeti að rammíslenskum sið og fór það vel í
mannskapinn.
Næsta stopp var svo uppi við gamlan skála sem ég man ekki
allveg hvað hét, með súpu og samlokum, ofsalega huggulegt að fá
hressingu svona inn á milli. svo tók
við kafli sem var svona einna langdregnastur og það var að stórum
hluta yfir blöndu af snjó á köflum og urð og grót þess á milli, þá
setti ég bara á mig Ipodinn og hlustaði á kónginn sjálfan, Bubba
Morthens syngja eins og honum einum er lagið og leið þetta allt
eins og hendi væri veifað.
Þegar yfir hálsinn var komið blasti fegurðin ein við,
verð ég að segja, hef aldrei í mínu lífi komið á fegurri stað, ég
varð fyrir einhverjum svakalegum áhrifum af þessu landslagi og
hrikalegheitum íslenskrar náttúru að því fá ekki orð líst, á meðan
ég naut þessarar einstöku náttúrusýnar hlustaði ég á diskinn Álfar
og fjöll með Þórunni Lárusdóttur og Friðriki Karlssyni, lög á borð
við Ísland er land þitt og fleiri góð hljómuðu í eyrum mér á meðan
ég sveif um í leiðslum.
Það eitt er allveg á hreinu í huga mér akkurat núna að ég
skil ekki að ég hafi aldrei verið þarna áður, bara skil það ekki,
og það er nokkuð ljóst að ég á eftir að fara þarna aftur, slík er
fegurðin.
Svo kom að við fórum að nálgast áfangastaðinn skref fyrir
skref, og fór sigurtilfinning að færast yfir meir og meir í hverju
skrefi, þetta er allveg hreint
magnað.
Tóku básarnir blíðlega við okkur í morgunsárið á
laugardeginum eftir ca 10 tíma göngu, var farið í bað,
slegið upp tjöldum og farið að sofa í sátt við lífið
sjálft.
Svo vakti mágur minn hann Timothy mig klukkan að verða
18.00 og var þá tími til að hafa sig til í grillið sem ÚTIVIST stóð
fyrir og var það allveg til fyrirmyndar eins og reyndar allt annað
í þessari ferð, eftir matinn var svo varðeldur þar sem allir
gönguhóparnir sameinuðust hringinn í kringum með miklum
fjöldasöng.
Á milli kvöldmatarins góða og varðeldsins fékk ég góða
heimsókn úr bænum en þarna voru tveir góðir félagar mínir mættir,
þeir Bjarnþór og Arnór og fengum við okkur smá göngutúr uppí
hlíðina og Arnór leiddi okkur hina inn í hugleiðslu og er það
allveg hreint frábært að hugleiða svona úti í allri þessari
náttúrufegurð með niðandi læk við hlið sér og 3 í hóp, svo fórum
við og sungum með hinum við
varðeldinn.
Eftir varðeldinn spjölluðum við félagarnir aðeins fram
eftir kvöldi og þar sem þeir voru bara í bíltúr þá renndu þeir í
bæinn rétt fyrir miðnætti væntanlega vel andlega á sig
komnir.
Í gær vöknuðum við svo og tókum saman dótið, settumst í
rútuna og nutum heimferðarinnar með frábæran fararstjóra á vegum
ÚTIVISTAR okkur til fróðleiks á þessari fallegu leið.
Ég er búinn að setja nokkrar myndir inn í albúmið hér að
neðan til vinstri og eru fleiri væntanlegar.
»
Síður: 1 2 3 4
|
Dagsetning
28. janúar 2012
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 1 september
|